|
26.04.2007 16:27:13 / snorri11
Nú er ég búinn að færa síðuna mína yfir á mbl.is.
slóðin er
>>http://pulsuhundur.blog.is/blog/pulsuhundur/<<
»
17.04.2007 15:07:49 / snorri11
ég er voðalega hugmyndalaus um hverju ætti að bæta inná þessa tómu
síðu. endilega kommentið um hvað ég á að bæta inn á þessa síðu. Nú
er skólinn bráðum að klárast, og ég er mikið ánægður með það.
»
31.03.2007 11:56:37 / snorri11
Nú er maður loksins frjáls, þó ekki sé nema í einhvejra 11 daga. Nú
get ég loksins sofið út. Ég var á Selfossi í gær, og átti leið inn
í Hljóðhúsið. Keypti mér þar 3 ágætis gítarneglur. Ég er búinn að
læra heilmikið nýtt á gítarinn, meðal annars Theme lagið úr Lord Of
The Rings. Ég hef ekki frá mörgu öðru að segja...
»
21.02.2007 13:13:36 / snorri11
»
27.01.2007 10:29:42 / snorri11
Jæja, ég er snúinn aftur í bloggskapi, en fjarvera mín hefur verið
mjög löng. Ástæðan fyrir engu bloggi svona lengi er einfaldlega sú
að ég er orðinn svo fjandi latur við þetta. Ég var í afmæli í gær
og var það mjög gaman. Það var horft á myndina "Little Man". Fyrir
þá sem ekki kannast við myndina, farið hingað.
>> http://www.imdb.com/title/tt0430304/ <<
Þetta er hin fínasta mynd. Ég er búinn að vera að spila helling á
gítarinn minn, og kann meira nú heldur en ég kunni áður. Það er
próf í skólanum á mánudaginn, og hellingur að læra. Ég nenni ekki
alltaf að vera að læra endalaust. Sem betur fer er ég búinn með
andstyggðar stærðfræðibók sem ber nafnið "Geisli". Það er ótrúlega
þreytandi bók. Mamma mín botnar varla neitt í henni, ekki Guffi
bróðir minn heldur, og stundum botnar kennarinn ekkert í henni
heldur!!! Allavega er ég búinn að fá heldur skárri bók núna.Nú er
verið að plana utanlandsferð, og er áfangastaðurinn eitthvað af
þessu: Rhodos - eyja hjá Grikklandi, Krít - líka eyja hjá
Grikklandi eins og flest allir vita, eða Marmaris -
Tyrkland!         Ég get varla beðið eftir að fara út!
Síðast þegar ég fór til útlanda, þá var ég eins og hálfs árs,
þannig að ég man ekkert eftir því. En ég ætla að binda enda á þetta
blogg. Blogga meira seinna.... vonandi....
»
07.01.2007 01:10:43 / snorri11
Ef þið viljið horfa á fyndnar klippur, farið þá inná þetta:
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208
mæli sterklega með þessari síðu.
»
05.01.2007 12:31:02 / snorri11
Jæja, nú er jólafríið búið og skólinn byrjaður aftur. Það var
mjööööög pirrandi í skólanum í dag, það var annar kennari af því
kennarinn sem átti að kenna okkur var veikur. Þessi kennari var að
kenna okkur stærðfræði, og hann spurði svona 50 sinnum hvort 3
sinnum 9 væri 27! ,,Hvað er 3x9? hvað er 3x9? hvað er 3x9.....
Allur bekkurinn var að brjálast!!! En það var svosem ágætt í
endan því þá fengum við að fara í tölvurnar og gera bara það sem
við vildum. Það er reyndar orðið frekar leiðinlegt af því að þetta
eru svo lélegar tölvur. Skjákortið er svo ömurlegt að það ræður
varla við neina leiki! og svo eru þær svo slow að maður getur varla
gert neitt! Það mætti hafa kannski aðeins betri tölvur!
Blogga meira seinna...
»
25.12.2006 00:54:39 / snorri11
Jæja, nú er búið að rífa utan af pökkunum, og innihaldið var
gott   
Listinn:
MP3 spilari
Eragon - Öldungurinn (bók)
Þrumufleygur (önnur bók)
DVD - Click
DVD - Pirates of the caribbean - Dead man's chest
DVD - Cars
DVD - Futurama - season one (teiknimyndaþættir frá sömu
framleiðendum og gera The Simpsons)
PS2 - Grand theft auto - Liberty city stories
Síðerma bolur
Peysa
ilmkerti (smágjöf frá vini mínum  )
Quality street nammidós
Jámm  Þetta var allt fínt
»
24.12.2006 18:22:49 / snorri11
»
17.12.2006 17:52:21 / snorri11
Ég hef ekki bloggað síðan ég veit ekki hvenær, en ástæðan er
einfaldlega sú að ég hef ekki nennt að skrifa. Guðríður systir mín
er nýbúin að eignast barn, og er það vikugamalt í dag. Ég er búinn
að vera lasinn yfir alla helgina, og fer ekki í skólann á morgun.
Jólafríið mitt byrjar á miðvikudaginn, og ég get ekki beðið. Ég er
orðinn hundleiður á þessum fjárans skóla. Hörður frændi minn, sem
er í vinaflokknum, fór til pabba síns yfir helgina, og fékk að hafa
PS2 tölvuna mína með sér. Ég er ekki sáttur, af því að Guðríður
vann leik í sms leik frá BT. Leikur þessi ber heitið Commandos
strike force, en er fyrstu persónu skotleikur sem gerist í seinni
heimstyrjöldinni. Guðríður ætlaði að gefa Herði hann (Hörður er
sonur hennar), en Guffi hélt að hann væri aðeins of erfiður fyrir 7
ára strák, og ég hélt það líka. Guðríður segir mér að ég megi eiga
hann af því að hún haldi að hann sé of erfiður og ljótur fyrir
Hörð. Ég varð ansi ánægður með þetta, nema hvað, ég er ekki með
tölvuna. En allavega, ég prófa hann seinna í kvöld, þegar Hörður er
kominn með gripinn (tölvuna). En nú set ég síðasta punktinn.
Blogga meira seinna...
»
19.11.2006 13:43:30 / snorri11
Út af einhverjum óskiljanlegum ástæðum get ég ekki komið inn mynd
af Ford Mustang GT, en það er auðvitað hægt að skrifa Ford Mustang
GT á google. En það eru samt myndir af Alfa Brera, Mazda RX-8,
Porcshe CaymanS og Lotus Elise.
»
18.11.2006 22:56:50 / snorri11
ég hef komist yfir ítölsku orðabók, og hefur setningin "Io che
genio, peró tu irritare imbecille" verið í mínu uppáhaldi af því
sem ég hef verið að læra. Setningin þýðir: Ég er snillingur, en þú
ert hálfviti. Heheheh. Einn vinur minn á msn hét the italian eða
eitthvað, og ég var alltaf að bögga hann með einhverjum setningum.
T.d. irritare squilibrato, sem þýðir ertu geðveikur. En hann hafði
náttúrulega ekki hugmynd um það, og svona böggaði ég hann aftur og
aftur.
»
17.11.2006 20:11:51 / snorri11
Ath! Myndirnar af bílunum eru alvöru bílarnir, ég tek ekki myndir
af bílunum á skjánum. En allavega, ég hef því miður ekki hugmynd um
hvernig á að setja inn myndir af netinu, svo ég þarf að komast í
færi við meistara minn, Guðfinn bróðir minn. Ég kalla hann meistara
minn af því að hann kenndi mér mikinn hluta af því sem hann kann á
tölvur, og hann kann MIKIÐ. Svo þá hlýt ég að kunna mikið. En ég
veit ekki hvernig maður kemur inn myndum af netinu, allavega ekki
ennþá. En því miður er meistari minn í Reykjavík að spila leik
guðanna. FIMBULFAMB. Ég á eftir að setja link á heimasíðu
Fimbulfambs, en meistari minn bjó hana til.
En ég fór á Borat síðasta sunnudag. Hún er SNILLD! Meistari minn á
enn eftir að fara á hana í bíó. Það er ekki alltaf gaman að vera
lærlingur. Það koma stundir þar sem ég er sendur fram og aftur til
að ná í engjaþykkni, gos og fleira fyrir meistara minn. En jæja,
hef ekki meiri þolinmæði í hugsun.
»
17.11.2006 19:43:57 / snorri11
Jæja, ég er búinn að fá enn einn leikinn! Í þetta sinn er það
nýjasti leikurinn í Need For Speed seríunni, eða Need For Speed:
Carbon. Hann er snilld! ég er með Alfa Brera, Lotus Elise, Ford
Mustang GT, Porsche CaymanS, og Mazda RX-8. Þetta eru allt magnaðir
bílar. ég set kannski myndir af þeim seinna.
»
13.11.2006 14:19:06 / snorri11
Ég er alls ekki sáttur! Ég tognaði í skólanum á föstudaginn! Ég
er að drepast í fætinum og er haltur! En jæja, það verður að hafa
það Ég var í dönsku prófi og stærðfræði prófi. Ég var nú bara í
stærðfræði prófinu áðan en dönskuprófið var minnir mig á
föstudaginn síðasta. Það var ógeðslega létt. Stærðfræði prófið var
erfiðara en samt skítlétt. Það verður bara gaman næstu daga, því ég
er bara í skólanum á morgun og svo er frí á miðvikudaginn. og
nemendasamningar á fimmtudaginn og föstudaginn og ég fæ líka
einkunnir úr samræmduprófunum á föstudaginn. En jæja, hef ekki
þolinmæði til að hugsa aftur um hvað hefur gerst og hvað er að fara
að gerast meira. Svo hér set ég síðasta punktinn.
»
Síður: 1 2 3
|